Peruvikan

02. nóvember 2009

Jæja krakkar mínir nú er Peruvikan á næsta leiti!

Peruvikan hefst þann 9. nóvember og lýkur með balli þann 12. nóvember

Það verða viðburðir í skólanum hvern einasta dag í hádegishléum og einnig verður alltaf eitthvað að gerast í skólanum á kvöldinn! Ekki missa af viðburðum á borð við Fífa mótið og Djúpa Pottinn ;)

Nánari upplýsingar um dagskrá í peruvikunni verða auglýstar þegar nær dregur.

Kveðja,

Elín Ágústa Gjaldkeri

Nýnemaráð og Morfís

22. september 2009

Nemendafélagið leitar eftir hressum nýnemum(fædd árið 1993) í svokallað nýnemaráð.. Nýnemaráðið hefur verið þannig síðustu ár að aðeins tveir nýnemar hafa fengið að komast inn í nemendafélagið en samkvæmt nýju lögunum verður breyting þar á.. Nýnemunum bíðst tækifæri um að sækja í hin ýmis ráð sem eru starfandi innan nemendafélagsins.. þannig að við leitum að nýnemum í eftirfarandi ráð: Skemmtinefnd, Íþróttaráð, Markaðsráð og Listanefnd.. Einnig hvetjum við nýnema til að láta okkur vita ef þau vilja taka þátt í videogerðinni stefnt er að því að sýna allavega einn þátt á þessari önn jafnvel tvo og sama á við um næstu önn...

Ég vil líka minna alla á að fyrsta morfísnámskeiðið er á fimmtudaginn næstkomandi 24.09.09 og hvet ég alla sem hafa einhvern áhuga á rökræðum eða bara koma skoðunum sínum á framfæri að kíkja á þetta námskeið. Námskeiðið verður haldið eftir síðasta tíma á fimmtudaginn í stofu M26..

kv. Dagur form..

Ný önn, ný stjórn

06. september 2009

Nú er allt komið á fullt hjá nýju nemendafélagi og lítur nemendafélagið svona út:

Stjórn

Dagur Sigurðsson - Formaður

Kristín Benediktsdóttir- Ritari

Elín Ágústa Birgisdóttir - Gjaldkeri

Guðmundur Birgir Ægisson - form. Skemmtinefndar

 

Skemmtinefnd

Agnes Geirsdóttir

Sól Margrét Bjarnadóttir

Bjarki Þór Ingimarsson

 

Listanefnd

Bergþóra Fanney Einarsdóttir

Elísa Björk Schram

Kristján Karl Steinarsson

 

Markaðsráð

Dóra Írisardóttir

Elísabet Ösp Guðmundsdóttir

Esther Steinson

 

Íþróttaráð

Einar Már Þórisson

Kristján Hafþórsson

Örvar Jakobsson

 

Videoráð

Bergur Rúnarsson

Lárus Sigurvin Jóhannesson

 

Ljósmyndaráð

Magnús Yngvi Einarsson

 

Málfundafélag

Steindór Haraldsson

 

Vefráð

Alexandra Baldursdóttir

Björn Smith

 

Verið er að vinna í því að koma síðunni í gang en hvetjum við alla til að fylgjast með okkur á Facebook síðunni og þess má til gamans geta að Busaball FÁ verður haldið hátíðlegt á skemmtistaðnum NASA við Austurvöll og er aðgangseyrir einungis 2000 krónur fyrir félagsmenn en littlar 2500 fyrir utan nemendafélagið...

Góðar Stundir..

kv. Dagur formaður..

 

NordPlus

26. apríl 2009

Fjölbrautaskólinn við Ármúla tekur þátt í svokölluðu NordPlus samstarfi ásamt skólum í Finnlandi, Eistlandi, Lettlandi og Litháen. Í lok mars var haldinn undirbúningsfundur á Íslandi.

            Næsti fundur verður í Eistlandi og stendur hann frá 17. til 24. september í haust. Einnig verður ferðast til Lettlands og Litháens. Heimsóttir verða skólar í öllum löndunum. Í Paide í Eistlandi verður alþjóðleg ráðstefna unglinga.

            Þrír kennarar FÁ fara og fjórir nemendur. Ákveðið hefur verið að gefa nemendum skólans kost á að sækja um að fara í ferðina.

            Ferðir og gisting er greidd fyrir nemendurna en þeir greiða mat sjálfir. Nemendur gista annaðhvort í skólunum sem heimsóttir verða eða á einkaheimilum.

            Í umsókninni á nemandinn að fjalla örlítið um sjálfan sig og ástæður þess að hann vill taka þátt í þessu verkefni. Einnig þarf hann að gera grein fyrir kunnáttu sinni í erlendum tungumálum.

            Umsóknum á að skila á skrifstofu skólans í síðasta lagi fimmtudaginn 30. apríl nk. Valið verður úr umsóknum í byrjun maí.

            Allar upplýsingar gefa Eiríkur Brynjólfsson, Gerður Hannesdóttir, Helmut Hinrichsen og Úlfar Snær Arnarson.

Söngkeppni Framhaldskólanna

15. apríl 2009

Söngkeppni Framhaldskólanna verður haldin laugardaginn 18. Apríl næstkomandi á Akureyri.  Fyrir hönd FÁ mun Elín Ágústa Birgisdóttir taka þátt, hún mun syngja lagið án þín með Trúbrot.

Miðasalan á keppnina og ballið er hafin inni á nemó(V13). Miðaverð er 2600kr,- bæði á söngkeppnina og á ballið sem er eftir keppnina, á ballinu munu koma fram Bermúda+Eyþór Ingi (úr bandinu hans bubba), Últra mega technó bandið Stefán, Ingó úr veðurguðunum og Haffi Haff.

Viljum við bend á það að FÁ mun EKKI bjóða upp á "pakkatilboði" þar eigum við með að FÁ mun ekki bjóða upp á rútur og gistingu í VMA.

Með kveðju

Nemó

P.S.

Á morgun(16.apríl) er bleikur dagur þannig að við hvetjum alla til þess að klæðast einhverju bleiku á morgun.  

 

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 >>