Nýnemaráð og Morfís

22. september 2009

Nemendafélagið leitar eftir hressum nýnemum(fædd árið 1993) í svokallað nýnemaráð.. Nýnemaráðið hefur verið þannig síðustu ár að aðeins tveir nýnemar hafa fengið að komast inn í nemendafélagið en samkvæmt nýju lögunum verður breyting þar á.. Nýnemunum bíðst tækifæri um að sækja í hin ýmis ráð sem eru starfandi innan nemendafélagsins.. þannig að við leitum að nýnemum í eftirfarandi ráð: Skemmtinefnd, Íþróttaráð, Markaðsráð og Listanefnd.. Einnig hvetjum við nýnema til að láta okkur vita ef þau vilja taka þátt í videogerðinni stefnt er að því að sýna allavega einn þátt á þessari önn jafnvel tvo og sama á við um næstu önn...

Ég vil líka minna alla á að fyrsta morfísnámskeiðið er á fimmtudaginn næstkomandi 24.09.09 og hvet ég alla sem hafa einhvern áhuga á rökræðum eða bara koma skoðunum sínum á framfæri að kíkja á þetta námskeið. Námskeiðið verður haldið eftir síðasta tíma á fimmtudaginn í stofu M26..

kv. Dagur form..