Peruball 2007

03. nóvember 2007

Peruball FÁ 2007

Eins og flest allir vita lauk peruviku FÁ 2007 með stórglæsilegu peruballi sem haldið var á Nasa fimmtudaginn 1.nóvember, en það var ekkert venjulegt ball þar á ferð heldur klúbbaball. DJ Sindri Bé Emm og Plugg'd héldu uppi rífandi stemmingu á ballinu og var dansgólfið pakkað.
Þvílíkt ljósashow var í gangi með laser og reykmisti og svo voru það að sjálfsögðu glowstickin sem afhent voru við innganginn sem toppuðu alla stemmingu.
 
Fólk virtist skemmta sér vel og fór ballið vel fram.
 
Ég vil þakka öllum fyrir góða og skemmtilega peruviku og svo auðvitað fyrir frábæra mætingu og klikkaða stemmingu á peruballinu sjálfu.
 
Allar myndir frá peruballinu eru komnar inn og sömuleiðis einhverjar frá peruvikunni sjálfri og fleiri á leiðinni.
 
Fyrir hönd NFFÁ
 
Alexandra Sif Nikulásdóttir, formaður NFFÁ

Miðasalan heldur áfram

01. nóvember 2007

Miðasalan er enn í fullum gangi og er eitthvað af miðum eftir.. Hvet alla að mæta í peruna og splæsa á eitt stykki miða. Ekki oft sem svona ball er á boðstólnum sem skólaball.
Við munum sitja hér eitthvað fram eftir, til kl: 17:00 eða bara eins og miðar leyfa.
 
Munið skilríkin á ballið !!
 
Kveðja perumiðasalan

MIÐASALAN

01. nóvember 2007

Miðasalan hefst á morgun kl: 9:00 í perunni og verður hægt að kaupa miða eitthvað fram eftir deginum.
 
Ég minni ykkur einnig á að fylgjast með á steypunni á morgun en er hugsunin að hita aðeins upp fyrir ballið og ætlar Sindri að sjá til þess að fólk komist í fílingin fyrir kvöldið.
 
Svo eru fullt af nýjum myndum komnar inn á síðuna
 
Sjáumst öll eldhress á morgun
 
Alexandra Sif Nikulásdóttir, formaður NFFÁ

DJÚPI POTTURINN

31. október 2007

Ég vil minna fólk á Djúpa pottinn í kvöld en þá ætlum við að skemmta okkur fáranlega vel hérna á Steypunni í FÁ. Húsið opnar kl: 20:00 og má búast við því að allt saman byrji bara skömmu eftir átta. 
Fjórar gullfallegar stelpur úr FÁ keppast um heltanaðan Verzló fola.
Þegar pilturinn hugsar sig svo um munu Mr. Dilly og S.Cro troða upp.
 
Vonumst til að sjá sem flesta
 
Alexandra Sif Nikulásdóttir, formaður NFFÁ

PERUVIKUTÓNLEIKAR

30. október 2007

Ég minni á Peruvikutónleika sem fara að hefjast en húsið opnar kl: 19:00. Alls ekki amalegir tónlistarmenn þar á ferð og margir þeirra að gera góða hluti í tónlistinni hér á Íslandi.

SOUNDSPELL - POETRIX - PERLA - Djasskvartettinn RETTAN

Aðgangseyrir eru litlar 300 kr og hvetjum við sem flesta til að mæta og hafa gaman af.

Kveðja Alexandra Sif Nikulásdóttir, formaður NFFÁ

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 >>