VETRARBIKARINN!!!

27. september 2007

Jæja elskurnar mínar þá er looooksins komið að þessu:D Hinn eini sanni marg umtalaði VETRARBIKAR er að ganga í garð á morgun;) Núna eru 15 lið komin á blað og það er allt að gerast!! Fyrsti riðillinn fer hress af stað á morgun og verður fyrsti leikurinn spilaður tímanlega kl. 14:30 og þess vegna er gott ef að eftirfarandi lið eru mætt tímalega í SPORTHÚSIÐ Í KÓPAVOGI:

1. Riðill
Team Júdas
F.C. Holgóma
F.C. Búndurass
Restin F.C.

Fyrir þá sem ekki vita og hafa ekki verið að fylgjast með þá kostar 500 kall á hvern einasta kjaft í hverju liði. Þetta eru um tveir tímar á hverjum föstudegi þannig við erum að klára um 16:30. Hver leikur er 2*7 mínútur og það eru 5 menn inná í einu og 2-3 vara menn. Fleirra held ég að sé ekki nauðsynlegt að vita fyrir þennan fyrsta föstudag en ef að það vakna einhverjar spurningar hringiði þá í mig í síma: 823-3446 og við reynum að ráða fram úr því :D

Með kærri kveðju og miklum spenningi eftir að hitta ykkur hress
Þorvarður Kristjánsson ÍÞRÓTTAMAÐUR

P.S. Það eru allir velkomnir að koma og horfa á:D

Morfís Ræðunámskeið

21. september 2007

Sæl börnin góð. Morfís ræðunámskeiðin verða haldin í stofu V-14 í næstu viku frá mánudegi til fimmtudags. Námskeiðin byrja klukkan 17:00 og munu standa yfir í ca. 1-2 tíma per kvöld. Á námskeiðinu verður farið yfir tækni og framkomu og munu síðustu tvö kvöldin verða síðan nýtt sem undirbúningur fyrir innanskólakeppni sem haldin verður í vikunni á eftir. Þá verður valið í lið sem mun mæta MS í æfingarkeppni. Kveðja Rebekka Líf

Nýnemaráð og listanefnd

17. september 2007


Smá tilkynning hérna:D

Á fimmtudeginum voru tekin viðtöl við alla þá sem sóttu um í nýnemaráð og listanefnd. Það kom verulega á óvart hve mikil ásókn var í bæði ráðin og voru umsóknir langt fram úr okkar væntingum. Þar sem umsóknir voru svo margar var valið einnig erfitt og sátum við í nemendaráði lengi yfir þessu á föstudaginn en komumst loks að niðurstöðu. Í listanefnd voru það þær Karólína Vigdís og Margrét Nana sem komust inn og í nýnemaráð þau Guðjón og Bryndís. Til hamingju með það og vil ég þakka þeim sem sóttu um:)
Sú ákvörðun var líka tekin að Sindri Ástmarsson yrði inni í svokallaðri tækninefnd og mun hann því sjá um uppsetningu tækja og svo framvegis fyrir hinar ýmsu uppákomur. Til hamingju með það;D

Hvet alla til að mæta í prófílmyndatöku og skoða plakötin sem við vorum að hengja upp varðandi innanskólamótsins í Paintball.. um að gera að skrá sig en skráning fer fram inni á nemó;)

Ale

Umsóknarfrestur og prófílmyndatökur

13. september 2007


Í dag í hádeginu krakkar mínir er seinasti sjéns á að skila inn umsókn í nýnemaráð og sömuleiðis listanefnd. Svo fáið þið sendar upplýsingar um það hvenær tekið verður viðtal við ykkur. Við viljum sjá fleiri stelpur sækja um í nýnemaráð, yfirleitt er valið eina stelpu og einn strák. Svo að stelpur ekki vera feimnar við að sækja um;D Umsóknarblöð liggja inni á nemendaskrifstofunni og einnig við hugmyndakassann okkar.

Svo smá skilaboð í viðbót!
Ljósmyndaráð og Frikki úr Markaðsráði ætla að byrja í fyrsta hléi á morgun að taka myndir fyrir prófílana á faviti.is sem þú ert akkúrat staddur/stödd á núna en ný síða mun líta dagsins ljós um leið og búið að er að ganga frá prófílmyndatökunum. Strákarnir ætla að vera niðri á steypu næstu tvær vikurnar í öllum hléum. Þetta ætti ekki að fara fram hjá neinum á steypunni. Um að gera að láta smella mynd af sér til að gera síðuna líflegri;)

Ale;D

Hádegistónleikar Miðvikudagsins

11. september 2007

Jæja krakkar þá er komið af fyrstu hádegistónleikum þessarar annar það verður hann Kilo öðru nafni Garðar sem spilar í hádeginu á malbikinu og ætlar koma með nokkra takta og texta.

Allir mæta á malbikið í hádeginu og kinka kolli.

Síðan vil ég endilega biðja stelpur að bjóða sig fram í nýnemaráðið þetta er bara gaman.

Hlakka til að sjá sem flestar stelpur bjóða sig fram. en já strákar þið meigið líka sækja um =)