Hressir busar

04. september 2007

Yo
Er nú ekki alveg viss hver fékk þá frábæru hugmynd en í hádegishléinu í dag, komu nokkrir busar inná nemendaráðsskrifstofu og voru svo vænir að nudda nokkra ráðsmenn.
Ég tók upp tvö myndbönd, smellti þeim á YouTube og þú ætlar að tjékka á þeim ! :D






Svo eru myndir úr Busaferðinni væntanlegar!
Munið svo Útivistardaginn á morgun, komið með léleg föt og ég mæli með einhverju til skiptana + handklæði!

Gettu betur var mjög síðbúið Aprílgabb....

04. september 2007

Grín í bala..... Þetta gettu betur quiz verður næsta miðvikudag, ekki á morgun. virðingarfyllst...

Busaball 2007

03. september 2007


Þá er komið að því sem flestir bíða spenntir eftir. Fyrsta ball vetrarins, sem er jú busaballið! Hér kemur því allt fram sem þú þarft að vita varðandi ballið;D

Hvenær? Miðvikudaginn 5.september
Hvar? Gauk á stöng
Fram koma: Buff á neðri hæðinni og Dj Danni Deluxe á efri hæðinni
Húsið opnar: kl: 21 Húsinu lokar: kl: 23
Ballinu lýkur: kl: 01
Verð: 2000 fyrir meðlimi NFFÁ - 2500 fyrir aðra
Miðasala hefst: í hádeginu mánudaginn 3.september

Tryggðu þér miða;D

Busaferðin 2007

31. ágúst 2007


Blessuð og sæl krakkar mínir;D

Þá eru allir þeir sem skelltu sér í eitt stykki lífsleikniferð í Þórsmörk komnir heim á leið. En nemó og lífsleiknikennarar ásamt nýnemunum okkar þetta árið lögðum akkúrat af stað í gær rétt eftir klukkan níu á vit ævintýrana.

Rútuferðin gekk eins og í sögu þetta árið og voru engar rútur sem festust, en hræðslan var þó í hámarki hjá nokkrum þegar keyrt var yfir árnar. Að sjálfsögðu var farið í fótbolta við komu í Þórsmörk, nemó vs busum og var það nemó sem fór með sigur þrátt fyrir minna lið, eftir það var rugby og fengu sumir að eiga góðar stundir í grasinu.. Seinna var farið í göngu og skelltum við okkur í hermannaleikinn fræga sem var hrein snilld enda smá blaut stemming þar sem það rigndi all hressilega og voru allir mjög skemmtilega skítugir eftir hann, en höfðu auðvitað gaman af. Var það svo kvöldvakan sem toppaði ferðina en þar var stemmingin í hármarki. Farið var í ýmsa leiki og endaði kvöldið á hæfileikakeppni sem hann Jens vann:)

Vil þakka ykkur öllum fyrir snilldar ferð og einnig bjóða þá Stefán Pálsson og Hörð Gunnarsson velkomna inn í nemendaráðið en þeir fengu stöðurnar í ljósmyndaráði. Til hamingju með það strákar;D

Fyrir hönd nemó Ale

Haustönn 2007 - upplýsingar

15. ágúst 2007


Velkomin á faviti.is

Það kæmi mér lítið á óvart ef þú ert að byrja þína fyrstu önn í FÁ. Ef ekki þá koma eftirfarandi upplýsingar þér líka að notum:

Afhending stundataflna
20. ágúst Nýnemar (úr 10 bekk) mæta kl. 10, stundvíslega.
20. ágúst og 21. ágúst Eldri nemendur mæti á milli 11 og 14.

Við sjáumst svo í anddyri skólans :)
Góða helgi og góða skemmtun, hvort sem er á dönskum dögum eða á Menningarnótt !

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 >>