Stuttmyndin Þröng sýn sýnd á morgun

20. mars 2007

Dvoted kynnir í samstarfi við NFFÁ:
Stuttmyndin Þröng sýn verður sýnd miðvikudaginn 21. mars kl. 12:40 í matsalnum.

Þröng sýn eftir Guðmund A. Guðmundsson og Þorgný Thoroddsen er margverðlaunuð hreyfimynd sem meðal annars hefur hlotið verðlaun á hinni virtu Karlovy Vary hátíð í Tékklandi auk fjölda annara verðlauna og tilnefninga. Þröng sýn var einnig fyrsta íslenska myndin á dvoted

dvoted er ókeypis vefur sem hjálpar ungum kvikmyndagerðamönnum að koma sjálfum sér og kvikmyndum sínum á framfæri. Fáðu viðbrögð bæði frá fagfólki og öðrum í þínum sporum á Norðurlöndum. Aflaðu þér upplýsinga um allt sem þú þarft að vita um kvikmyndagerð beint frá fólkinu í faginu.

www.dvoted.net

FÁvita Lan

20. mars 2007

Jæja nú er komið af því, seinna lanið er nú um helgina (23-25.mars). Margir leikir verða á dagskrá, til dæmis: Counter strike 1.6/Source, wow, eve, S.T.A.L.K.E.R, Worms 4, BF2142, Test Drive Unlimited og margir fleirri. Það verður frítt inn og við verðum með einhverjar snúrur fyrir þá sem gleymdu sínum heima, þannig allt er klárt. Mæting verður svipuð og alltaf eða milli klukkan 16:00 og 18:00. Frítt verður á lanið og verður húsið opið alla helgina, en allt óþarfa ráp er óvelkomið.

Fimmtudagurinn mikli

14. mars 2007

Núna á fimmtudaginn verður mikið um að vera í hádeginu, Þrándur Jensson ætlar að koma og verða fyndinn fyrir okkur, en hann vann einmitt eina að undankeppnunum fyrir Fyndnasta mann Íslands og mun vera einn af þeim sem á möguleika á að vera Fyndnasti maður Íslands föstudaginn 6 apríl. Svo þegar hann hefur lokið sér af ættlar Ramses að rappa fyrir okkur. Be there ore be square!!:)

Sundlaugarpartý

09. mars 2007

Vúhú baby... Á fimmtudaginn verður sundlaugarpartý haldið í sundhöll Reykjavíkur. The party byrjar á slaginu 21:30 og stendur það í einn og hálfan tíma eða til 23.00 og mun Love Gúru þeyta skífum og trylla lýðinn! Það er frítt inn þannig að allir ættu að geta komið og skemmt sér vel. miðar verða dreifðir í hádegishléinu á miðvikudaginn... Vonandi að flestir komi af því að þetta heppnast ekki nema fólk mæti í kippum... Sjáumst bara eldhress og spræk, bri!

Uppistand

07. mars 2007

Núna er leitin að fyndnasta manni Íslands hafin. Í tilefni þess ættlar Úlfar Linnet, fyrrum fyndasti maður Íslands að koma í hádeginu á morgun og vera með uppistand. Þannig að allir verða að vera mega hressir á steypunni í hádeginu:) Nánari upplýsingar um keppnina er að finna á uppistand.is

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 >>