
Fyrstu fimmtudagstónleikar vorannar verða haldnir á morgun, fimmtudag. Siggi Lee Lewis mun leika boogie woogie að hætti meistara Jerry Lee Lewis í hádeginu á morgun. Nemendur eru kvattir til að mæta með rockabilly dueið.

Lið Fjölbrautaskólans við Ármúla mun etja kappi við lið Mennaskólans á Egilsstöðum í spurningakeppni framhaldsskólanna, Gettu Betur, annað kvöld.
Mun lið okkar keppa hér heima í Reykjavík en ME keppir fyrir austan. Öllu verður svo varpað á milli með gríðarlegri tækni og skemmtilegheitum.
Keppnin hefst kl 20:30 í útvarpshúsinu, Efstaleiti. Hvet ég alla til að mæta og sýna liði okkar stuðning sem hefur unnið hart við að reyna að koma liði okkar áfram!
ÁFRAM FÁ!

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Næsta önn er að byrja og þú þarft að sjálfsögðu stundaskrá...
Starfið á vorönn 2007 byrjar með Kennarafundi 4. janúar kl. 10:30.
Nýnemar sækja stundaskrár 4. janúar kl. 10:00
Eldri nemendur sækja stundaskrár 4. og 5. janúar milli. 11:00 og 14:00
Kennsla byrjar þann 8. janúar skv. stundaskrá.
Þetta er basicly 4. og 5. janúar milli 11 og 14 síðan skólinn á mánudag.
Hlakka til að sjá alla á morgun og hinn uppí skóla að sækja stundaskránna sína.
Kveðja Frikki

Sæl öll sömul.
Langaði bara að kasta kveðju á nemendur skólans og Nemendaráðið.
Vona að ykkur hafi gengið vel á prófunum, eða kannski betur en á horfðist.
Að þið hafið skemmt ykkur vel á Jólaballinu og að þið eigið gleðilega hátíð.
Við sjáumst svo vonandi öll aftur á vorönn 2007 og að sú önn verði geggjuð á alla vegu !
Gleðileg Jól ! :)

Jæja krakkarnir mínir!
Þá er komið að því, Jólaball NFFÁ!
Ballið verður haldið á Ásbyrgi, Broadway.. Um að gera að fagna próflokum saman!
Fram koma:
Gleðisveit Ármúla, DJ Benni B-Ruff og Gísli Galdur (DJ Magic).
Miðaverð:
Meðlimir NFFÁ fá miðann á 900kr.
Aðrir hressir gestir þurfa að draga upp 1300 kallinn.
Miðasala:
Miðasala hefst í V-álmunni á fimmtudag kl 10:00.
Miðasalan verður opin frá kl 10:00 til 14:00 alla daga vikunar,
Gangi ykkur vel í prófunum og sjáumst á Jólaballinu!
...
...
...