Já litlu sætu busarnir mínir þá er BUSAFERÐIN á morgun og það verður alveg bilaðslega gaman, ALLIR verða að koma með því að það er auðvitað skyldumæting.
Farið verður í leiki á kvöldvökunni og um daginn, inni sem úti þannig
að komið endilega með svona semi-druslu föt þannig að þið séuð ekki að
skíta út einu fötin ykkar í ferðinni. Það sem er must-have í
ferðina er auðvitað crazy góða skapið....
p.s. Ekki gleyma namminu, það er ekkert svo sniðugt!!!! ;)
kv. Andri :)

Mikið fjör var í sal skólans í kvöld þegar hið árlega busakvöld var
haldið. Dagskrá kvöldsins var ekki á verri endanum enn Oddur Boxari
byrjaði kvöldið á laufléttu uppistandi. Beggi blindi mætti svo á sviðið
og hraunaði enn meira yfir hitt og þetta, hina og þessa og var hann án
efa hápúnktur kvöldsinns. Allir hlóu sig máttlausan.
Eftir smá gríni komu svo Pizzur í hús og kláruðust þær fljótt á meðan Helgi Valur, trúbador söng og spilaði hin og þessi lög.
Þetta kvöld heppnaðist bara mjög vel og allir fóru mjög sáttir heim.
Næst á dagskrá er svo bara Busaferðin til Þórsmerkur, ferð sem enginn
vill missa af ;)
Fyrir hönd nemendaráðsinns vona ég að þið hafið skemmt ykkur vel og þakka fyrir komuna.

Jæja kæru busalingar þá verður haldið busa-kvöld í kvöld fyrir ykkur
kl. 19:30 - 22:00 í sal skólans. Það er auðvitað skyldumæting og allt
verður craaazy ef að þið mætið ekki. það sem er á dagskrá í kvöld er
uppistand, trúbador og svo pizzur og gos. En aðal markmið kvöldsins er
að þið kynnist hvor öðru betur og kynnist okkur nemendaráðinu
líka.
kv Andri :)

Hefurðu gaman af að ferðast? Hefurðu gaman af að syngja? Viltu kynnast
nýju fólki? Hefurðu áhuga á að vinna þér inn einingar og skemmta þér í
leiðinni? Þá er kórinn rétti staðurinn fyrir þig! Við stefnum á kóramót
þar sem við munum hitta kóra frá öðrum framhaldsskólum á landinu. Í
fyrra var mótið haldið á Selfossi, og það var mjög skemmtilegt. Á
síðustu önn, héldum við okkar fyrstu tónleika.
Ef þú vilt ekki syngja, en getur spilað á eitthvert hljóðfæri, þá getur
þú samt verið með. Stefnt er á að stofna hljómsveit innan skólans, sem
öllum er velkomið að vera með í.
Skráningarblað, fyrir hvort tveggja, verður að finna á skrifstofu skólans, fram til 5. sept.
Allir velkomnir!
Kv. Kórstjóri
Nemendur sem hafa 0 sem fyrsta staf í kennitölunni sinni athugið:
Upp virðist hafa komið villa á blöðin með notendanöfin og lykilorð en
notendanafn á að vera kennitalan ykkar. Ef tölustafurinn núll er fyrsta talan virðist hún í flestum atvikum ekki hafa prentast á
blaðið og viljum við benda ykkur á að bæta henni við.
Fyrir hönd NFFÁ biðst ég afsökun á þessum óþægindum og bendi á netfangið vefstjorn@faviti.is ef eitthverjar spuringar varðandi þessa villu eða vefin koma upp.
...
...
...